Margur er knár þó hann sé smár:)

Heiðdís Dögg

11.07.2008 18:49:42 / heiddis

Yndislegt:)

Komiði sæl...langaði bara að láta vita að lítil prinsessa leit dagsins ljós á settum degi þann 09 júlí kl 05:06 :) hún er svo sannarlega stór og stæðileg - mældist 4070gr - rúmar 16 merkur og 56,5cm - algjör lengja og svooo fullkomin:)

erum komin með síðu á barnalandi...slóðin er
http://barnaland.is/barn/74856/
sendið mér bara póst og ég sendi lykilorð um hæl:):) -

                     HEY EITTHVAÐ VESEN MEÐ ÞETTA BARNALANDSDÓTARÍ..ALLAVEGA FÆ ÉG ENGIN E-MAIL ÞANNIG AÐ ENGIN MUN FÁ SVAR FRÁ MÉR...EN ÞIÐ GETIÐ SENT MEIL Á hdogg@internet.is

kær kveðja, Stoltasta mamman=)

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 10:52:27 / heiddis

03.07.08

Hæbbzz...

eitthvað hefur verið nöldrað yfir bloggleysi hjá mér síðustu daga en mér finnst ég alveg nýýý búin að skrifa inn smá fréttir ... en svo kemst maður að því að það eru bara margir, margir dagar síðar - tíminn flýgur svo frá manni að maður bara áttar sig ekki á því ... mér reyndar finnst það ágætt eins og er að tíminn fljúgi áfram því þá styttist enn meira í að unginn okkar komi í heiminn ... :d en það sem er sorglegt er að þegar tíminn líður svona hratt þá styttist óðum í að skólinn byrji aftur - meira að segja komin stundartafla inná netið og byrja ég 25 ágúst ... eins og er er ég enganvegin tilbúin í þann pakka en vonandi að ég verði það þegar að þar að kemur þó svo ég hafi ekki mikla trú á því - en ég skal meika þennan vetur .... bara einn vetur eftir og þá er ég orðin hjúkrunarfræðingur í baráttu um launin við kerfið...skemmtó...hehe..:haha:

annars er svosem ekki mikið fréttnæmt hjá manni þessa dagana...foreldrarnir og krakkarnir komu um síðustu helgi en því miður þarf pabbi að fara á sjó á mánudaginn aftur og kemur ekkki í land fyrr en ca um mánaðarmótin sept-okt...þannig að það mun líða einhver tími þar til hann fær að sjá krílið...en sem betur fer er netþjónustan orðin þannig að hann fær allavega að sjá myndir...:) en það er alveg æðislegt að hafa þau hérna til að hangsa með því nóg er af hangsi...það er ekki endalaust hægt að þrífa í kotinu, þvo þvott og svoleiðis skemmtilegheit...og ekki hangir maður í búðum þar sem það kostar nú bara milljón og tvær að kíkja niðrí bæ - og ég ekki að vinna...= ekki að virka...8|

búin að lesa alveg heilan helling í sumar - hef aldrei lesið svona mikið frá því ég byrjaði að stunda skólann...hefur alltaf fundist nóg að lesa skólabækur og vinna á sumrin - en þegar maður er ekkert að vinna þá er fínt að eyða smá tíma í lestur á góðri bók...og ekki hefur veðrið verið gott undanfarið - endalaus rigning og skemmtilegheit og því hefur verið minna um sundferðir undanfarið .. langar svooo að sólin fari að láta sjá sig ...8)

þetta er aldeilis innihaldslítið og óskemmtilegt blogg hjjá mér...en þið eruð allavega búin að fá smá fréttir ... allir glaðir yfir því - hehe... og að sjálfsgöðu kvittðið fyrir ykkur ... er það ekki annars???

knúsar og kossar

» 13 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 11:03:05 / heiddis

20.06.08

Halló...
 langar að byrja á að óska ykkur Gleðilegs sautjánda júní fyrir þrem dögum ... vona að dagurinn hafi verið skemmtilegur...það voru aldeilis rólegheitin á mínu heimili - fórum í sveitina einhvertíman fyrir hádegi og vorum þar aaallan daginn nema rétt um kaffileytið skruppum við á bílasýningu og svo bara aftur inn í sveit...brjálað að gera...heh...en það var voða notalegt:haha:

dagarnir mínir einkennast af miklu hangsi...ég barasta kann þetta alls ekki...hef alltaf unnið allt heila sumarið í rúmlega 100% vinnu og svo allt í einu er ég bara ekkert að vinna...ég skil sko ekki fólk sem nennir að hangsa svona daginn út og daginn inn og vera bara á bótum að hafa það notalegt...vissulega er gott að fá smá frí inná milli en að vera svona lengi í fríi fær geðheilsuna til að hraka...heh...eeen ég reyni nú að hafa eitthvað fyrir stafni...búin að gera næstum allt á listanum sem ég bjó til í prófunum - og það var nú alveg slatti og svo bara finn ég mér eitthvað að gera...eeen mér finnst samt frekar spes að þurfa aldrei að mæta neitt heldur get bara gert það sem ég vil þegar ég vil...:d en þrátt fyrir hangsið þá líður tíminn ótrúlega hratt sem er bara gott mál...nema það að þá styttist ooof hratt í að skólinn byrji aftur og ég er svo sannarlega ekki tilbúin í þann pakka alveg strax...en það kannski kemur...vonandi!!!

vika í að mamma og krakkarnir koma - get sko varla beðið...jeminn hvað mig hlakkar til að sjá þau og fá að hafa þau hjá mér alveg í 6 vikur eða svo...bara best í heimi..:)

ætlaði annars bara rétt að láta vita hvað ég er dugleg í hangsinu...svo er bara að muna að þið eigið að vera dugleg í kvittinu - er það ekki annars????
knúsar, Heiðdís Dögg

» 8 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 16:23:57 / heiddis

kvittið maður

það sem þið öll eruð léleg í kvitteríinu maður...maður púlar sér út við að halda uppi svona líka skemmtilegri síðu...heh...og engin kvittar..eeen ég fer að hætta þessu hvort sem er...

veit einhver hvernig er hægt að læsa þessu blessaða blog.central drasli og geta gefið hint um lykilorðið??

styttist óðum í að mamma og co komi á klakann...tel niður dagana:) er einhvernvegin alltaf að telja niður í eitthvað..heh..en það heldur manni við efnið - er samt búin að vera rosa dugleg síðustu daga...búin að þrífa eldhúsið hátt og lágt, innréttinguna, ísskápinn og allar græjur ooog nokkra glugga í íbúðinni...dugnaðarforkur...:haha:

en ætla að hafa þetta stutt núna og það er eins gott fyrir ykkur að kvitta...
Heiðdís Dögg...sem kann ekki að setja inn myndir á þetta blessaða blogg - spurning um að vera ó-tæknivædd..


» 11 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 10:00:02 / heiddis

30.05.08

hæbbz..ég held að stjörnuspáin mín í dag segi bara allt sem segja þarf eins og staðan er ....

Hrútur: Líðan þín er of tengd líkamanum. Það er krúttlegt hvernig hárið eða kílóafjöldinn getur alveg sett þig út af laginu. Slakaðu á. Þú ert mannlegur.

jeminn sko..bara einsog talað útúr mínum munni...hehe:haha:

allt við það sama, endalaus rólegheit - tek svona eitt og eitt herbergi og þríf það á milli þess sem ég ligg í sundi að slappa af...:) annars er svosem ekkert nýtt - þannig að ég segi þetta bara gott, varð bara að láta stjörnuspánna flakka í þetta skiptið...
endilega munið eftir kvitteríinu..
kv. Heiðdís Dögg

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.05.2008 09:56:17 / heiddis

24.05.08

jæja jæja...þá er mín búin að vera í sumarfríi í 2 vikur...þessar tvær vikur hafa flogið hjá og vonandi að framhaldið verði jafn fljótt að líða:) ótrúlega skrítið að vera bara að hangsa svona aaalllan daginn þar sem ég held ég hafi aldrei fengið meira en tveggja daga frí samfleytt frá því ég byrjaði að vinna 13 ára eða svo þ.e. og verið heima...hef náttúrulega farið í frí til útlanda..en það er pínulítið speees að vera í fríi og bara heima hjá sér í chillinu...:haha: en fínt samt sem áður...vona bara að ég missi ekki geðheilsuna...hef svosem nóg á listanum til að vinna á...gengur ekki alveg nógu vel að saxa á hann en það hlýtur að koma...búin að þrífa baðherbergið hátt og lágt...búin að taka til í skápnum í litla herberginu hérna og er að vinna í því að taka til þar - gengur freeekar hægt...8|

svo er ég búin að kaupa mér lakk og eitthvað svoleiðis dótarí, pússupappír og pensla og sonna skemmtó þar sem ég ætla að gerast handlaginn heimilis"faðir" og pússa upp hillu sem ég er með hérna og gera hana hvíta háglans...fekk eiginlega í magann um leið og ég var búin að versla þetta en vonandi að þetta verði bara allt í lagi - ég get allavega státað mig að því að hafa reynt þetta...hehe8|

prófin gengu svona glimrandi vel fyrir utan eitt próf...én í hinum fjórum var ég með eina 8,5, tvær 9 og eina 9,5....þannig að þessi eina eiðilagði eiginlega allt...en það er ekki hægt að vera góður í öllu (tel mér allavega trú um það...hehe...) en ég er bara sátt með mig þar sem þessi önn var djöffullega erfið og prófatíðin ekkert skárri þar sem ég átti freeekar erfitt með að sitja svona lengi við og hafði mjööög margt að hugsa um annað en skólabækurnar...hihii...en þetta hafðist og er ég glöð með mig...8) og nú á ég bara eftir að taka fjögur próf í háskólanum og skila nokkuð mörgum verkefnum og einu stóru og þá verð ég orðin hjúkrunarfræðingur...hjúff - mér finnst ég svo lítil til að vera hjúkrunarfræðingur...en ég hef eitt ár enn til að stækka pínku meira...:haha:

styttist í að mamma og krakkarnir komi til mín...reyndar einn mánuður..en tíminn er svo fljótur að líða að það verður komið áður en við vitum af...bara 34 dagar...svo kemur pabbi um miðjan júlí - það verður endalaust gott að hafa þau hjá sér, og þau stoppa sko fram í miðjan ágúst...gegggggjað..8) verða reyndar hjá ömmu og afa en þó með annan fótinn í kotinu hjá mér...;)

held ég sé hætt í bili...margt að gera í dag - fara á toyota og láta þrífa bílinn fyrir mig (það er sko þjónustu dagur hjá þeim í dag...verður að nýta það maður..=)) svo þarf að versla - allt einsog tóm tunna í kotinu, fer í útskriftarveislu til Halldórs frænda sem er að útskriftast úr VMA - TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ - og svo er matarboð og að sjálfsögðu að horfa á Friðrik Ómar og Regínu Ósk taka júrovísjón í nebban í kvöld...gleði gleði...

NAMMIDAGUR...

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 08:16:34 / heiddis

Sumarfríið mætt...=)

hæbb...ákvað að henda inn smá fréttum þar sem ég er alltaf vöknuð fyrir allar aldir og er að "bíða" eftir að komast í nudd sem er ekki fyrr en klukkan 10:) það verður rooosa notalegt...

prófin kláruðust fyrir viku og er ég búin að hafa það endalaust gott síðan og hef hug á að halda því bara áfram...dúlli dúll bara...þessu prófatíð var heldur erfið að mínu mati og hefur oft gengið betur...er búin að fá tvær einkunnir - í örðu prófinu skeit ég uppá bak og niður á hæla að mínu mati...(náði samt..en fekk lægra heldur en ég vildi..vil ekkert lægra en 7:)) og svo gekk svona glimrandi vel í því síðara sem ég er búin að fá útúr...bara eftir að fá útúr 3...verður spennandi að sjá...og það verður svo sannarlega gott líka því þegar maður er búin að fá útúr prófunum ÞÁ er maður komin í SUMARFRÍ....8)

sól og blíða á eyrinni núna og ætla ég sko að skella mér í sund strax eftir nuddið og reyna að fá smá brúnku á kroppinn...ekki veitir af..maður er eins og kríuskítur8|

ég er algjörlega tóm eitthvað, veit bara ekkert hvað ég ætti að skrifa hérna inn....verð samt að hafa orð á því hvað ég elska það mikið að fá orlofið - sérstaklega þegar maður man ekki eftir því og svo allt í einu er upphæðin á reilkningnum búin að hækka töluvert....ljúúúft..

svo eru bara 42 dagar í að mamma og krakkarnir komi til okkar á klakann...og ætla að vera sko alveg í 6 vikur eða eitthvað og svo kemur pabbi eitthvað seinna eða þegar hann kemur heim af sjónum...það verður endalaust gott að hafa þau svona innanhandar þegar stóra stundin rennur upp:d

jæja ætla að reyna að nýta tímann smá áður en dúllið hefst...er með svo langan lista yfir to do hluti...en ég er þó byrjuð á honum og vonandi að  mér takist að strika út af honum jafnt og þétt;)

svo er bara að muna eftir kvittinu ljúfurnar...
kisskiss - Heiðdís Dögg

» 4 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 13:12:34 / heiddis

;)

Það er bara dugnaður í minni...tvö blogg á afar stuttum tíma...það er nú smá ástæða fyrir því...júbb..PRÓFATÍÐ...:$ eitt próf búið og "bara" fjögur eftir...11 dagar í sumarfrí og dúllerí...ég sit hérna dögum saman að lesa og inná milli hugsa um allt sem ég ætla að gera þegar þessi próftörn er búin...það er sko ýmislegt skal ég segja ykkur - þrífa glugga, taka til í skápum, pússa upp borðstofuborðið og bera á það, þvo gluggagardínur, liggja í sundi, oooog svo mætti lengi telja..er alveg komin með heil heil langan lista;) spurning hvort verði af þessu öllu, kemur í ljós...=)

annars var sumardagurinn fyrsti 24 apríl - GLEÐILEGT SUMAR - en þá kom snjókoman...sem var pínku gott (þ.e. ef ég hugsa BARA um mig.. og mína samnemendur í háskólanum)..ekki eins erfitt að hangsa inni allan daginn og lesa og ég var ekki alveg jafn mikið að deyja úr hita eins og síðustu vetrardagana...hjúff maður...8| þennan sama dag og sumarið kom þá átti pabbi gamli afmæli...óska bestasta pabbanum til hamingju með það að vera orðin árinu eldri...gamli kall;)

annars er bara gleði framundan...lestur, lestur og lestur...vúhú..;) en það er eitthvað að hlakka til að heldur það manni alveg gangandi...=)

ætla að segja þetta gott í bili...svo er bara kvitteríið þið munið8)
KizzKizz


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 14:49:20 / heiddis

nýtt blogg - ótrúlegur dugnaður:)

halló...komin tími á smá fréttaskot úr sælunni...eða sælunni?? veit ekki .. ef próf kallast sæla þá má nota það orð..en ég held ég kallai það frekar eitthvað annað, orð sem er ekki eins upplífgandi..en ég nenni ekki svoleiðis nölli hér..:$

svosem ekkert margt að frétta...átti afmæli í síðustu viku og fekk ég ekkert smá margar kveðjur og gjafir þann daginn..þakka sko kærlega fyrir mig ljúfurnar mínar=) fekk m.a. skó svo ég geti verið dugleg að labba úti í sumar, pils, aðra skó, helming í myndavél (Viðar fekk víst hinn helminginn:)), inneign í dekur á aqua spa, nudd tíma, styttu, blóm, pening og ég veit ekki hvað og ekki hvað..mætti halda að um stórafmæli hefði verið að ræða:haha: litla dekurrófan..=) en með blómið...ég er nú engin sérstök blómakélling en Inga sagði mér að ég þyrfti að vökva það ca annanhvern dag og hélt ég nú að ég gæti það...vökvaði það t.d. í fyrradaga, fekk frí frá blómarækt í gær og ætlaði að vökva það áðan en þá fannst mér blómið eitthvað skrítið...það var bara næstum dautt...hvað er málið eiginlega?? ég sem hef ekki gleymt einum degi í að gefa því að drekka (fyrir utan dagana sem átti að sleppa náttúrulega)...þannig að nú er ég með það mér við hlið, búin að gefa því vel að drekka og spjalla við það milli þess sem ég les glósurnar mínar...jahh einhvernvegin verð ég að reyna að bjarga afmælisgjöfinni minni...8|

24 dagar í sumarfríí...vúhú..ég get næstum niður klukkutímana, er svo spennt...vonandi bara að það verði súper gott verður í maí og júní svo ég geti notið þess að liggja í sundi og svona dúlleríi...svo pottþétt verð ég nöllandi yfir því ef verður gott veður yfir því hversu djöfullega heitt er...því ég er eitthvað heitfengari en ég hef oft verið áður...skil ekkert í því...hehe:haha:

vitiði hvað...stór þáttur í því að við fáum tannskemmdir er það að maður er nartandi í mat allan liðlangann daginn...(eins og ég s.s.)...ég verð ábygglega komin með gervitennur áður en ég veit af ef þetta nart í mér heldur svona áfram...allar tennur skemmdar og tannsi bara með töngina á lofti, kippandi tönnum úr mér sökum skemmda...hjúff..held ég verði að reyna að hætta að éta svona mikið...annars endar þetta með ósköpum.. verð svosem eins og tannlaus fíll...og ekki vljum við það:!:

en jæja...ætla að halda áfram að lesa þangað til ég fer í sundið góða..=) ef einhverjir eru enn að kíkka á mig þá megiði endilega skilja eftir ykkur smá spor...

» 10 hafa sagt sína skoðun

22.03.2008 13:18:30 / heiddis

22.03.08

Tók forskot á sæluna í súkkulaðidögunum miklu og opnaði eitt páskaegg áðan...jammí..=) við hjú áttum nefnilega fjögur...tvö stór og tvö aðeins ekki jafn stór..og ég tek það fram að bollan ég keypti þessu "litlu"...Viðar vann eitt í einhverju happdrætti og fekk eitt riiisa egg frá vinnunni svo við ættum ekki að líða súkkulaðiskort þessa páskana;)

Reimar bróðir fermdist svo um síðustu helgi og gekk fermingin æðislega vel, Linda mín skreytti salin og stóð sig með miklu prýði..allir spurðu og spurðu útí skreitingarkonuna miklu;) snillingur hún Linda=)

páskafríið hefur einkennst af leti og leti og leti...áti og smá gubbupest..ég veit nú reyndar ekki hvaða djók það var..en sem betur fer er ég búin að jafna mig...hef ekkert lært og verður þá bara tekið á honum stóra sínum strax eftir páska..=) því á nógu er að taka, þó eru "bara" þrjú verkefni eftir á þessari önn...og svo auðvitað að læra allt efnið...:haha:

búið að vera yndislegt að hafa foreldrana og systkinin hérna...þó er frekar þröngt á þingi...en þröngt mega sáttir sitja..og hvort sem þið trúið því eða ekki þá henntum við svo miklu drasli úr litlu kompunni okkar að það var alveg rúmlega heill pikkup...duglegu við;)

en ætla að segja þetta gott...verð að halda áfram í páskaegginu..
kisskiss, Heiðdís Dögg

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 14:13:16 / heiddis

09.03.08

HallóHalló...9 mars í dag sem þýðir að það eru aðeins tveir mánuðir í að ég komist í langþráð sumarfrííí...get varla beðið..skólinn alveg að gera útaf við mig..bara endalausir fyrirlestar og verkefni sem er ekki það skemmtilegasta...en þetta hlýtur að hafast á endanum, held allavega í vonina;)

Áðan var minnsta frænkan mín að fá nafn og fekk hún það fallega nafn, Ingibjörg Ringsted..og hún var bara svooo sæt í athöfninni og ekkert smá góð, greinilega ánægð með nafnið..óska famelíunni hamingjuóska með nafnið á dömunni=)

Svo er Reimar "litli" að fara að fermast eftir viku..jedúdda..hann sem er alltaf bara 10 ára...og því kemur mamma til okkar á morgun og pabbi og krakkarnir koma svo á fimmtudaginn...ætla að láta gömluna sjá um undirbúninginn;) en erum við hjú endalaust spent að fá þau í heimsókn og erum við þokkalega búin að standa á haus í tiltekt svo húsið sé fólki bjóðandi...sérstaklega þar sem þau þurfa að sofa á golfinu...fá reyndar smá dýnu undir sig en samt..ekki spennandi að sofa í rykinu;) þannig að kotið er núna svona líka helv...glansandi og fínt..bara að þetta héldist svona lengur en í einn dag....skil bara hreinlega ekki hvaða allt þetta ryk kemur..og við bara tvö í heimili, veit ekki hvernig þetta verður þegar maður verður komin með riiisa fjölskyldu..hjúff - ætli maður standi ekki bara á haus alla daga með moppuna í annarri og tuskuna í hinni...:$

annars er bara allt ljómandi að frétta...fyrir utan smá kvef og hálsbólgu..en það hristir maður bara af sér eins og skot...þýðir ekkert annað þar sem mikið er um að vera framundan...og svona í tilefni þess að það eru endalausar veislur framundan þá ákvað mín að fá eins og eina frunsu...hafði aldrei fengið frunsu...varð svo eins og andresina um jólin sökum riiiisa frunsu, held í alvöru að ég hafi aldrei séð neitt svona óhuggulegt og stórt, og nún er ég komin með nýja...ömurlegt...en ég er dugleg með frunsuáburðinn og vonandi verður þetta komið í samt lag um næstu helgi;) held í vonina...:haha:

svona eitt að lokum...hvar endar þetta með verðlagið hér á landi eiginlega...ég get svarið það, hvað ætli séu margir sem hafa ekki endalaust af peningum til að kaupa bensin á 150 kr líterinn...þetta er algjörlega ótrúlegt..þó svo að það séu einhverjir sem þetta skiptir engu máli þá eru svooo endalaust margir í láglaunastarfi sem þurfa samt sem áður að komast á milli staða og þurfa á mat að halda til að lifa af...8|..ég fór t.d. í Hagkaup um daginn til að kaupa afmæliskort...fann eitthvað rosa fínt grænt kort og fór á kassa...svo sagði daman 1498 kr og ég bara rétti henni kortið eins og hún hefði sagt 100kr...eftirá sagði ég bara vááá hvað þetta kort er dýrt, og hún sagði ekkert annað en já og gat enga skýringu gefið á því að öðru leiti...ég tók við nótunni og labbaði hneiksluð út...fór heim en ákvað svo á endanum að fara niður í Hagkaup og skila þessu korti, sem hefði átt að vera úr gulli miðað við verðið...og sagðist ætla að skila því sökum hás verðs...og ég fór að velja mér nytt kort og fann þar fínasta kort sem var í verðflokki 35 held ég og er það 240 kr...svo kem ég að kassanum og stúlkan segir " þetta kort kostar sko það sama " ég hélt nú ekki og sagði henni að ég hefði borgar næstum 1500 kr og það stæði að þetta kostaði bara 240 kr...þá fór hún að segja mér að ég hefði keypt eitthvað annað líka ásamt kortinu...ég hélt nú ekki og á endanum komumst við að þeirri niðurstöðu að græna kortið fína sem ég valdi í upphafi kostaði bara 240 kr en það hafði verið stimplað eitthvað inn í kassann þegar ég mætti og stúlkan sem afgreiddi mig í fyrra skiptið var ekki að kveikja á perunni þegar ég spurði út í kostnað kortsins og því var hún að láta mig borga fyrir kort og eitthvað annað dótarí ...segi nú ekki meir en sem betur fer fór ég aðra ferð...8)

jæja segi þetta gott í bili, er að fara í veislu að borða á mig gat og svo í matarboð til Elsu og Önna í kvöld...þannig að nóg að borða...sem er gleði fyrir matargatið mig...kizzkizz

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 09:06:35 / heiddis

Komin heeeeim!

Þá er mín komin heim í heiðardaglinn og mikið sem það er gottt;) ég keyrði ALEIN í fyrsta skiptið frá skaganum og til Akureyrar og meira að segja þurfti ég að fara einhverja krókaleið þar sem vegurinn rétt hjá Borganesi var lokaður....reyndar kom Viðar minn á móti mér, mamma hans og pabbi voru að fara suður og fekk hann far með þeim og mættumst við í Staðarskála, en hann var ekkert á því að leyfa mér að sleppa við að keyra svo ég keyrði alla leiðina norður...og það sem maður er stífur við þetta, reyndi eins og ég gat að vera vel afslöppuð en neihhh...ég var næstum með strengi daginn eftir...heh:haha:

Verknámið á skaganum gekk bara vel, fekk rosalega fína umsögn og var ég bara glöð, svona eftirá, með að hafa verið þarna...en ég segi það núna að ég mun aldrei og þá meina ég aldrei fara svona ein út á land aftur...þ.e. með engum öðrum nema eða engum öðrum sem ég þekki...nei takk!!!

Ég hata þetta blog.central dæmi...ég fer alveg um það bil að gefast upp á þessu draslaríi...eintómt vesen bara..en aldrei að vita nema ég þrauki í smá tíma til viðbótar...en það fer alveg ótrúlega mikið í taugarnar á mér að uppröðun á tenglum og allt sé farið úr skorðum og að ég kunni ekki og geti ekki lagað það...pirrpirr8|

í dag byrja ég svo í sundleikfimi...við skulum ekkert gera grín að því..það er svo gott fyrir mann að gera æfingar í sundi..verð bara eins og gamla fólkið - og ekki er það nú slæmt;) nema ég hugsa að ég sleppi sundhettunni...fekk mér líka þessi rosa fínu sundföt í gær...sem kostuðu næstum hvítuna úr augunum á mér..en maður verður nú að vera fínn í leikfiminni...heh:lol: og í sumar þegar sólin kemur hérna á norðurlandið og gerir kroppinn brúnan og sællegan...:haha:

svo er skólinn bara að byrja á mánudaginn og verður restin af önninni tekin með trompi..endalaus skóli og lærdómur og tekur þetta allt enda 9 maí...vááhh hvað það verður gott að komast í sumarfrí...get bara varla beðið sko...

ooog svo eru mamma, pabbi og krakkarnir að koma til landsins í kringum 10 mars og verða fram yfir páska þar sem Reimar sæti er að fara að fermast...litla skrímslið:haha: hlakka svooo til að fá þau til okkar

en ætla að segja þetta gott af fréttum í bili, endilega verið dugleg við kvitteríið...annars er ekki margt sem heldur manni gangandi með þessa blessuðu síðu...
knús, Heiðdís Dögg

» 6 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 16:59:07 / heiddis

Blogg frá Akranesi

komiði sæl öll...ég kem hérna inná síðuna mína og allt er breytt...búið að rugla saman tenglum og bara allt í hershöndum...eitthvað klikkerí hjá blog.central...=)

annars er allt sæmilegt að frétta...verknámið á skaganum gengur vel..fyrir utan það hvað mér leiðist þegar ég er ekki að vinna...er alein í riiisa stóru húsi með mörgum mörgum herbergjum...en í raun er allt til alls hérna..sameiginlegt eldhús, klósett, sjónvarp með stöð 2 og allur pakkinn, internetið og fleira...en það er bara svooo endalaust einmannalegt að vera svona mikið einn...borða einn, horfa einn á sjónvarpið og fleira...:( en hún Eva Björk mín er sko algjör bjargvættur...alveg búin að halda lífinu í mér hérna..=) sótti mig meira að segja í mosó þar sem ég treysti mér ekki að keyra lengra inn í borgina (ég veit...hérahjartað bara stoppaði mig af..)...og fórum við í IKEA, borðuðum á KFC og skelltum okkur í bíó á P.s. i love you - fínasta mynd...svona þriggja vasaklúta stelpuræma...sæææt:haha: stelpur bjóðið gæjunum ykkar á hana í kvöld í tilefni valentínusardagsins...heh!!!

en sem betur fer voru þær svo góðar við mig á deildinni að þær þjöppuðu verknámstímanum mínum saman, átti í raun ekki að vera búin fyrr en föstudaginn eftir rúma viku en í staðinn tek ég 12 tíma vaktir á laugardag og sunnudag og klára klukkan 1600 á mánudaginn...og þá ætla ég að leggja í´ann norður...:d gleði gleði...

fekk að sjá keisara í gær...þvílík upplifun og litla en samt frekar stóra barnið var svo endalaust flott og fínt...og líka skondið hvernig mamman er toguð og teygð til svo að þetta gangi allt vel fyrir sig...snilld barasta..en ég vonanst nú  pínu eftir því að ég fái að sjá allavega eina fæðingu, en ég reyndar er ekkert rosalega bjartsýn á það þar sem það er búin að vera algjör sprengja á fæðingardeildinni hérna og kannski ekki margar væntanlegar...en þó veit maður aldrei og bara best að vona það besta...ekki satt?

 
en jæja...ætla að segja þetta gott og fara að halda áfram að....jaaaa...hangsa...stuuuð..
endilega verið dugleg að kvitta..:haha:
kær kveðja, Heiðdís Dögg sem kemur á norðurlandið eftir að hún er búin að sofa í fjórar nætur...vúhú..

» 7 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 10:15:52 / heiddis

08.02.08

Sæææl...

ég hef oft spáð í því hvort sé ekki komin tími á nýja færslu hjá mér eeeen ég bara hef ekki hugmynd um hvað maður ætti að skrifa...allt gengur sinn vanagang..ég kláraði verknámið á lyfjadeildinni og fekk bara mjög fína umsögn fyrir og var ég mjög ánægð með að hafa verið þar, lærði alveg heilan hellling:haha:

öskudagurinn var með skrítnara móti að mér fannst...ég ekki að syngja og ekki í búning (kannski ekki skrýtið þar sem maður er langt komin á þrítugsaldurinn) og svo það versta var að það voru engin systkini sem komu heim í hádeginu með fullt af sælgæti sem ég gat étið frá þeim...Reimar hefði týmt að gefa mér svona eitt og eitt og ég hefði þurft að leyta af namminu hennar Lilju til að stela af henni...því hún faldi sitt alltaf svo grísinn ég kæmist ekki í það...hehe...en þennan öskudaginn hefði ég hefði þurft að fara í bónus og tralla eitthvað fyrir framan nammihillurnar þar og týna sjálf ofan í körfuna ef ég hefði ætlað að fá eitthvað smotteríis nammi...=) reyndar skrapp ég í bæinn með Guðrúnu Lindu, Írisi Ósk og krílunum þeirra sem voru með eindæmum miklar dúllur...bara lang flottust sko8) og Guðrún "söng" fyrir pabba sinn og fekk nammi fyrir okkur svo ég sat ekki alveg sykurlaus eftir daginn...hjúkket maður...:D

sprengidagur....bolludagur...það sem maður getur étið...úffúff...

fór til tannsa og varð 16 þúsund krónum fátækari fyrir vikið...grátlegt hvað þetta er dýrt...en ég tel að það borgi sig að fara einu sinni á ári og borga svona upphæfðir í staðinn fyrir að fara á nokkurra ára fresti og þurfa að punga út mikið stærri upphæðum..líka af því ég er svo mikill nammigrís..best að fylgjast vel með tönnunum...:haha:

svo er það bara Akranes á sunnudaginn þar sem ég mun vera í tvær vikur...ég ætlaði að keyra ein...sem yrði reyndar í fyrsta skiptið sem ég myndi keyra utanbæjar..fyrir utan þegar ég keyri í sveitina góðu...en ég er búin að vera með í maganum yfir því og svo er spáin ekkert sérstaklega góð...þannig að það gæti verið að Viðar minn taki sig til og skutli dömunni á skagann...litla hérahjartað ég...8|

en jæja nú er þetta orðið hundlangt og leiðinlegt blogg um barasta ekki neitt...svo ég kveð í bili..

kosssar og knúsar


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 17:04:34 / heiddis

16.01.08

!HallóHalló!

janúar hálfnaður...Viðar að verða gamall á sunnudaginn eða allvega árinu eldri..hægt að deila um hvað sé gamalt og hvað ekki;)

Þetta nýja ár leggst bara vel í mig...fekk loxins út úr öllum prófunum 5 jan eða svo og var ég alsæl með árangurinn...fekk 8 í hjúkrun fullorðinna, 8,5 í hand og lyflæknisfræði og 9 í geðhjúkrun og fæðingar og kvenhjúkrun...ótrúlegt hvað gekk vel miðað við alla maga"kveisuna" sem herjaði á mig í prófatíðinni:haha:

skólinn byrjaði með látum...bara setið á botninum frá 8 til 1600 eða 1700...og það sem manni var orðið illt í æðri endanum eftir alla þessa setu...svo tók verknám við og er ég að verða búin með fyrstu vikuna á lyfjadeildinni og lýst bara ansi vel á...nú er það ekki rófubeinið sem angrar mig heldur þreyta í fótum vegna þess hversu lítið maður hefur staðið uppréttur síðastliðna mánuði...heh...alltaf hægt að finna eitthvað til að kvarta yfir...:)

EM að byrja og er mikill spenningur í manni...það kemur alltaf upp gamli handboltaaðdáandinn í mér þegar þessi tími kemur...fór meira að segja í búð áðan svo ég ætti nú eitthvað gotterí til að maula á yfir leiknum...bara eins og í bíó-i:D

mig langar til útlanda...þar sem er hiti og sól og maður getur legið á ströndinn i allan liðlangann daginn á milli þess sem maður hoppar út í sjó til að kæla sig niður og ber á sig sólarvörn til að enda ekki eins og skorpinn karfi...ohh...ljúft!!!8)

er að fara að hitta skvísurnar mínar af elló um helgina og er mikill spenningur fyrir því...þær eru æði allar sem ein...=)

KiZZkiZZ


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 52220
gæjarnir;)